Þráinn Lárusson, hótelstjóri á Egilsstöðum, á Hótel Hallormsstað og Hótel Valaskjálf segir í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld, hertar sóttvarnaraðgerðir við landamærin „rothögg“.
Gestir á Hallormsstað sem komu í byrjun viku verða um helgina og framyfir hana en svo verður skellt í lás, strax í næstu viku. „Eftir það er þetta bara dautt, bara eyða“, segir Þráinn og afbókanir skipti hundruðum herbergja, á miðvikudag hafi hann tekið á móti 150 til 200 afbókaðum gistinóttum en rúmlega 90 herbergi eru á hótelinu. Þráinn segir að aðalatriðið að lifa af haust og vetur og Hótel Valaskjálf sem hann rekur líka verði að óbreyttu lokað fyrsta september nk. Veitingastaðirnir verði þó eitthvað opnir áfram, þó ekki allir þrír sem Þráinn rekur.
Í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld segir hann ákvörðun stjórnvalda hafa komið á óvart: „Ég verð að viðurkenna það, maður var búinn að finna eitthvað í loftinu en hélt að það yrði frekar bara aukin skimun en ekki farið fram á þessa sóttkví sem varð náttúrulega bara rothöggið sko“. Hótel Valaskjálf verður lokað að óbreyttu þann fyrsta september og eitthvað af starfsfólki munuhalda störfum sínum á þeim veitingastöðum sem Þráinn rekur líka en fyrst þegar faraldurinn hófst var öllu starfsfólki sagt upp með von um að uppsagnirnar gengju ekki eftir. Nú eru störfin alls ótryggð og ekki undir 50 manns mun verða sagt upp og sumir með lítil réttindi með stuttan starfstíma.