Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir það ótrúlegt að upplifa síðustu vikur og mánuði hvað hún fær agressíf viðbrögð í hvert skipti sem hún skrifar eða talar um klám og klámvæðinguna.
Rósa Björk opnar sig um þetta á Twitter.
„Hvað er það sem fólk óttast ? Meðalaldur krakka sem sjá klám í 1.sinn er 9-12 ára. Klám er meira hardcore en áður. Klámvæðing er hluti vandamálsins,“ segir Rósa.
Óvíst er til hvaða viðbragða Rósa er nákvæmlega að vísa til en í febrúar síðastliðnum brást hún illa við fréttaflutningi íslenskra fjölmiðla um andlát Larry Flynt. Flynt stofnaði klámblaðið Hustler fyrir margt löngu en hann lést í febrúar, 78 ára að aldri.
Hvatti Rósa fólk til að skrifa þeim íslensku fjölmiðlum kvörtunarbréf sem birtu fréttir um dauða hans. Var Rósa gagnrýnd nokkuð í kjölfarið en Flynt var í hópi þeirra sem börðust hvað harðast fyrir tjáningarfrelsinu.
Þá hefur töluvert verið rætt um klámvæðinguna í samhengi við auknar vinsældir OnlyFans, en Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu væri að skoða hvort Íslendingar sem selja aðgang að efni á síðunni væru að brjóta lög sem banna framleiðslu og dreifingu á klámi.
Rósa Björk steig fram á Twitter í kjölfarið og fagnaði því enda benti hún á að framleiðsla og dreifing á klámi væri ólögleg. Hún fékk nokkuð ákveðin viðbrögð í kjölfarið og spurðu sumir hvernig það verndaði fólk að gera klámiðnaðinn ólöglegan með öllu.