Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur kallað eftir því að yfirvöld bjóði Grindvíkingum upp á andlegan stuðning og gistingu á hóteli. Margir tóku vel í þessa tillögu þingkonunnar.
Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi virðist engan endi ætla að taka og eru margir Grindvíkingar orðnir langþreyttir á skjálftunum, enda upptök þeirra nánast undir bænum.
Sumir hafa gengið svo langt að fara úr bænum vegna skjálftanna og sagði Gunnhildur Björgvinsdóttir, íbúi í Grindavík, í samtali við RÚV um helgina að íbúar væru orðnir út taugaðir.
„Maður er alltaf í þessum ótta, og viðbragðsstöðu. Hvað gerist og þetta er farið að taka á mann,“ sagði hún og bætti við að hún og eiginmaður hennar hefðu ákveðið að flýja með fjölskylduna á hótel á Selfossi.
„Við höfðum hjónin ekki viljað fara tvö á hótel um helgina, nema af því krakkarnir vildu koma með og barnabörnin. Ég er ekkert róleg að vita af þeim í Grindavík og ég einhvers staðar annars staðar,“ sagði hún.
Rósa Björk deildi umræddu viðtali á Twitter um helgina og sagði:
„Ok. Komin tími á að yfirvöld bjóði Grindvíkingum sem hafa ekki sofið í 3 vikur og eru kvíðin og áhyggjufull upp á andlegan stuðning og gistingu á hóteli. Ekki öll hafa efni á hóteli, eiga sumarbústað eða ættingja til að leita til undan þessu andlega álagi.“
Óhætt er að segja að margir hafi tekið vel í þessa tillögu Rósu Bjarkar sem bætti við í annarri færslu að hún væri helst að horfa á gistiheimili eða hótel nógu langt frá skjálftasvæðunum svo fólk fengi að minnsta kosti að sofa. „Svefnleysi hefur alvarlegar afleiðingar á heilsuna og að auki er ótrúlega mikið andlegt álag að vera alltaf viðbúin því versta.“
Ok. Komin tími á að yfirvöld bjóði Grindvíkingum sem hafa ekki sofið í 3 vikur og eru kvíðin og áhyggjufull upp á andlegan stuðning og gistingu á hóteli. Ekki öll hafa efni á hóteli, eiga sumarbústað eða ættingja til að leita til undan þessu andlega álagi. https://t.co/WJSvFnCFtC
— Rósa Björk B (@RosaBjorkB) March 13, 2021