„Ég hef séð fullt af píkum og hver einasta þeirra er mögnuð og undurfögur,“ segir Rósa María Óskarsdóttir, Bodysex-leiðbeinandi í viðtali í Fréttablaðinu í gær.
Rósa situr í stjórn samtakanna Betty Dodson Foundation en markmið þeirra er að koma visku Dr. Betty Dodson, sem lést árið 2020, 91 árs að aldri, sem víðast. Betty var frumkvöðull á sviði kynfrelsis kvenna og helgaði líf sitt því að styðja konur í að tengjast líkama sínum og fullnægingum.
Sem Bodysex leiðbeinandi styður Rósa María konur í að heila skömm, auka unað og sjálfsást. Hún segir í viðtalinu að allar konur geta fengið fullnægingar með réttri fræðslu, örvun og stuðningi.
„Sumar konur hafa aldrei fengið fullnægingu vegna skorts á kynfræðslu í gegnum tíðina. Þess vegna er femínísk baráttumál að konur fái að endurheimta líkama sinn. Við burðumst enn með skömm frá því á miðöldum þegar píka var upp á latínu kölluð „pudere“ sem þýðir að skammast sín. Þarna kemur meðal annars skömmin, sagan og menningin sem er rótgróin í líkömum okkar,“ segir hún meðal annars.
Rósa segir allar konur vera með píkur sem séu jafn ólíkar og andlit þeirra.
„Ég hef séð fullt af píkum og hver einasta þeirra er mögnuð og undurfögur. Það er auðvitað mikil berskjöldun að sýna á sér píkuna og var það líka fyrir mig þegar ég sýndi hana fyrir framan konur, en við skoðum píkurnar saman og hvar allt er á þeim, og það er heilög stund þar sem eitthvað einstakt gerist. Það er helst að kona fari til læknis þegar einhver annar skoðar píkuna en þarna skoðum við hana til að þekkja hana, sjá fegurðina og endurheimta hana úr skömminni, sjá fjölbreytileikann og unaðslegu hliðina líka,“ segir Rósa.
Í viðtalinu talar hún einnig um snípinn og hversu brýnt það er að konur viti hvar snípurinn sé.
„Sumar konur vita ekki hvar snípurinn er því samfélagið, poppkúltúr, Hollywoodmyndir og meginstraums klámmyndir eru með leggöng á heilanum og einblína á að konur fái fullnægingar í gegnum leggöngin, en fæstar konur fá fullnægingu einungis með innsetningu í leggöng. Því er mikilvægt að fræða fólk. Snípurinn er aðal skynfæri fólks með píku þegar kemur að því að fá fullnægingu.“
Hér má nálgast þetta fróðlega viðtal við Rósu í Fréttablaðinu.