Rósa lætur karlana í Sjálfstæðisflokknum heyra það – „Smekklegt“

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar og fyrrverandi þingkona VG, segir körlunum í Sjálfstæðisflokknum til syndanna í færslum á Twitter.

„Það varð árás á þinghús Bandaríkjanna, valdarán reynt og 5 manns létu lífið í átökunum. Allt að áeggjan vitfirrts Trump forseta. Allt er á suðupunkti í BNA. Viðbrögð XD karla? Að bera saman atburðina v. Búsáhaldabyltinguna og magna upp þátt Álfheiðar Ingadóttur...Smekklegt,“ segir Rósa sem þarna vísar væntanlega meðal annars í ummæli þeirra Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Ölfusi, og Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Eins og frægt er orðið voru níu einstaklingar ákærðir fyrir árás á Alþingi í tengslum við Búsáhaldabyltinguna eftir hrunið 2008. Þau voru öll sýknuð af þeim ákærulið, en tveir voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og tveir voru sektaðir fyrir sinn hlut. Hafa sumir gengið svo langt að líkja atburðunum í Bandaríkjunum í síðustu viku við atburðina á Austurvelli eftir hrun.