Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, segir í færslu á Facebook-síðu sinni frá þeim vonbrigðum sem Vinstri græn hafa valdið henni með því að samþykkja rammaáætlunina.
Hún segist vera raunverulega og einlæglega sorgmædd yfir því hvert gamla hreyfingin hennar er komin þegar kemur að umhverfis- og náttúruvernd. Hún spurði sína gömlu félaga: „Hvar eruð þið ? Hvar er græna hjartað í hreyfingunni sem stofnuð var í kringum náttúru- og umhverfisvernd?“
„Ég viðurkenni að ég klökknaði því náttúruvernd er mér og fullt af fólki tilfinningamál. Og það er erfitt að sjá fyrrum félaga sína réttlæta eftirgjöf í svo mikilvægum málum sem náttúru- og umhverfisvernd er,“ segir Rósa Björk.
„Meirihlutinn handvelur rök, sem eiga að styðja breytingar á hverjum virkjunarkosti fyrir sig, en afneitar því miður vísvitandi, greinilega, öllum vísindalegum og faglegum gögnum sem mæla fyrir verndarflokkun umræddra kosta. Og öll rök um orkuskipti eiga ekki við,“ segir Rósa.
Rósa Björk tók fyrst sæti á lista VG árið 2003, þá hafði hún tekið þátt í baráttu fyrir verndum Kárahnjúkasvæðisins. „VG var eina umhverfisverndaraflið í íslenskri pólitík sem ég fann að ég gæti átt samleið með,“ segir Rósa Björk.
Rósa Björk sat síðan sem varaþingmaður árið 2013-2016. Árið 2016 tók hún sæti sem þingmaður VG, fjórum árum síðar sagði hún sig úr flokknum vegna eftirgjöf á stefnu hreyfingarinnar í umdeildu ríkisstjórnarsamstarfi.