Rósa Björk skammar Ingu Sæland: „Hversu mikil hræsni“

Inga Sæland var gestur í Kastljósi í gær þar sem hún tjáði sig um stöðuna í Norðvesturkjördæmi. Mikil reikistefna er í gangi þar sem óljóst er hvort verður kosið aftur í kjördæminu, eða jafnvel á landinu öllu, eða þá að seinni kosningin verði tekin gild. Birgir Ármannsson, formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar, hefur verið þögull sem gröfin á meðan rannsókn málsins stendur og vill hann ekkert gefa upp.

Vinna nefndarinnar hefur dregist töluvert síðustu vikur en vonir stóðu til að niðurstaða lægi fyrir í síðustu viku í allra síðasta lagi. Nú er útlit fyrir að þessi vika sem nú er strax orðin hálfnuð dugi ekki til, heldur verði niðurstöðu að vænta í næstu viku.

Töluverðrar óþreyju gætir meðal þeirra þingmanna sem í lausu lofti eru vegna stöðunnar, en alls tíu þingmenn eru í vafa um hvort þeir muni setjast á þing eður ei, loksins þegar niðurstaða liggur fyrir.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar – eins og staðan er í dag – er ein af þeim. Hún missti þingsæti sitt í kjölfar seinni talningarinnar. Staðan er alveg ljós fyrir henni: hún vill kjósa aftur, enda segir hún að kosningarnar séu ólöglegar. Hún fer afar ófögrum orðum um Ingu Sæland á Twitter síðu sinni í dag.

Inga er alveg klár á því að seinni talningin eigi að standa og vill ekki kjósa aftur – hvorki í þessu einstaka kjördæmi né á öllu landinu. Inga er formaður Flokks fólksins sem segja má að hafa unnið stórsigur í kosningunum, að minnsta kosti á mælikvarða þess flokks. Flokkurinn bætti við sig tveimur þingmönnum og stendur vel að vígi sem jafn-næststærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á Alþingi, svo lengi sem sú ríkisstjórnin nái saman um áframhaldandi samstarf. Það er þó ekki útlit fyrir um neitt annað, eins og staðan er í dag.

Rósa er aldeilis ekki sátt við Ingu og skammar hana rækilega í færslu sinni: „Hér talar formaður flokks sem hefur talað hæst fyrir réttlæti og gegn óréttlæti, spilling og samtryggingu. Og hefur heldur betur notað hávær gífuryrði um það. Samt alveg tilbúin að samþykkja ólöglega endurtalningu þingkosninga ! Hversu mikil hræsni.“

Ljóst er að Rósa á mikið undir í þeirri stöðu sem nú er uppi og berst með kjafti og klóm fyrir þingsæti sínu.