Rósa Björk fær á baukinn: Hvatti fólk til að skrifa kvörtunarbréf – Varaformaður flokksins orðlaus

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lýsir furðu sinni á því að íslenskir fjölmiðlar hafi fjallað um dauða Larry Flynt í vikunni. Flynt, sem var 78 ára þegar hann lést, stofnaði klámblaðið Hustler á sínum tíma og var ötull baráttumaður fyrir tjáningarfrelsi.

Rósa Björk skrifaði færslu í Femínistaspjallið á Facebook þar sem hún hvatti fólk hreinlega til að mótmæla slíkum fréttaflutningi.

„Hérna, af hverju í ósköpunum eru íslenskir fjölmiðlar að flytja fréttir af dauða einhvers karls sem hagnaðist á líkama kvenna og sölu á klámi ?? Hvaða erindi á þetta við okkur nema að upphefja klám - og nauðgunarkúltur ? Hvet öll til að senda kvörtunarbréf á þá íslensku fjölmiðla sem hafa birt fréttir af dauða þessa manns.“

Óhætt er að segja að innlegg Rósu hafi fallið misjafnlega í kramið hjá fólki og sagðist Frímann nokkur ekki alveg skilja hvað hún ætti við.

„Flynt var mjög áhrifamikill á 20. öldinni og gerðu fáir jafn mikið og hann fyrir rit- og málfrelsið, sama hvað okkur finnst persónulega um klám eða klámblöð. Svo finnst mér þessi blinda tenging á milli alls kláms og nauðgana vera ekki alveg á rökum reistar. Hefndarklám, barnaklám, snuff og aðrar upptökur af ofbeldi og nauðgunum á ekkert skylt við klám eða erótískt efni og ef það er ekki dregin skýr lína á milli þessara hluta verður öll umræða í framhaldinu furðuleg.“

Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, virtist hissa á nýjum þingmanni flokksins. Hún var stuttorð í sinni athugasemd og sagði einungis: „Bara ha?“

Guðrún nokkur sagði að Rósa sjálf væri að hvetja til ritskoðunar. „Sem er frekar hlálegt í ljósi þess að Larry Flynt barðist hart fyrir tjáningar- og ritfrelsi. Ég veit heldur ekki hverjir ættu að taka að sér að vega og meta hvaða dánarfréttir eru þóknanlegar.“

Viggó nokkur sagði að mögulega væri ósmekklegt að flytja fréttir af svona manni en það var væri líka ósmekklegt ef þingmaður væri að hvetja til ritskoðunar því þingmaðurinn er ósammála þeim sem rita fréttirnar.

Karen nokkur lagði orð í belg og sagði að sem betur fer væru til þingmenn sem eru ekki búnir að selja sálu sína og þora að setja spurningarmerki við orðræðuna. „Það er víst nóg af hinum sem gera eða segja ekkert því það er ekki vinsælt og færir þeim ekki atkvæði.“