Rómantískt ofstæki Kjarvals

„Hið dásamlega rómantíska ofstæki“ var það sem Ragnar í Smára gaf eiginleikum Kjarval sem málara.

Hið veglega rit, Gjöfin til íslenzkrar alþýðu sem kom út í lok síðasta árs fékk gullverðlaun FÍT, Félags íslenskra teiknara nýverið. Bókin er vegleg og er um hina miklu myndlistargjöf Ragnars Jónssonar í Smára sem lagði grunninn að Listasafni ASÍ. Þarna er fjallað um öll verkin 147 sem tilheyra gjöfinni sem eru verk virtustu og dáðustu málara 20.aldarinnar, svo sem Ásgríms Jónssonar, Jóhannesar Kjarvals, Þorvaldar Skúlasonar, Jóns Stefánssonar, Nínu Tryggvadóttur og Gunnlaugs Schewing.

Í bókinni segir þetta við þekktustu mynd Kjarvals:

Þegar Ragnar Jónsson var spurður um hvaða mynd honum þætti mesta gersemi í stofngjöf Listasafns ASÍ svaraði hann: „Ég er ekki í neinum vafa um það, að þar er mesta snilldarverkið, Þingvallamyndin hans Kjarvals, sem hann kallar Fjallamjólk. Þar er samaþjöppuð í einum punkti hin mikla snilld málarans og allt það dásamlega rómantíska ofstæki sem enginn á til nema Kjarval.

Fjallað eru um Ragnar og gjöfina og tengsl þessa óvenjulega iðnjöfurs við listamenn landsins í þættinum Sögustund með Lindu Blöndal. Rætt er við Arnar Fells Gunnarsson, annan hönnuð bókarinnar, Markús Þór Andrésson, sýningarstjóra hjá Listasafni Reykjavíkur og Elísabetu Gunnarsdóttur, safnstjóra Listasafns ASÍ í þættinum Sögustund í kvöld hjá Lindu Blöndal, mánudag Kl.20.