Rögn­valdur ó­sáttur: Alltaf fleiri en sex í heita pottinum og yfir­leitt sama fólkið

Rögn­valdur Ólafs­son, að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn hjá Al­manna­varna­deild ríkis­lög­reglu­stjóra, kveðst vera mjög dug­legur að fara í sund eftir að það varð leyfi­legt að nýju. Í­trekað séu þó reglur um há­marks­fjölda gesta í heitu pottunum brotnar.

Þetta sagði Rögn­valdur í sam­tali við RÚV fyrr í kvöld. Hann sagði að í síðustu sund­ferðum hans hefði hann ekki einu sinni komist í pottinn því hann er alltaf fullur.

Þeir lands­menn sem farið hafa í sund að undan­förnu hafa vafa­lítið tekið eftir því að í heitu pottunum eru stundum fleiri en leyfi­legt er. Í þeirri sund­laug sem Rögn­valdur sækir hvað oftast mega ekki vera fleiri en sex saman­komnir í heitu pottunum, en að sögn Rögn­valdar eru alltaf fleiri en sex í pottinum.

„…Og stundum sé ég að það eru fleiri þar. En maður sér líka stundum að það er sama fólkið sem er í pottinum meira og minna allan tímann sem maður er í sundi,“ segir hann og bætir við að ó­sann­gjarnt sé að aðrir komist ekki að.

Rögn­valdur hvetur fólk til að fara að reglum, sýna sam­stöðu og til­lits­semi. Það sé ekki sann­gjarnt að setja starfs­fólk í þá stöðu að vera að skamma fólk fyrir að fylgja ekki settum reglum.