Róbert Aron Magnússon, betur þekktur sem Robbi Chronic, segist ekki vera hefðbundinn stjórnmálamaður og raunar hafði hann aldrei hugsað sér að taka þátt í stjórnmálum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í í grein eftir Róbert, sem er í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík, á vef Vísis.
„Hins vegar er ég alinn upp við að vilji maður ná einhverju fram sé best að vaða í verkið sjálfur,“ segir Róbert sem hefur starfað sem veitingamaður undanfarna áratugi.
„Ég hef stofnað og rekið veitingastaði í nokkrum borgum í Evrópu. Í þeim efnum kom veganestið úr uppeldinu sér vel. Vandamálin voru fjölmörg, en sjaldnast óyfirstíganleg. Biluð loftræsting, samskipti við yfirvöld, þrif og viðhald. Eða hreinlega að gæta þess að eiga fyrir launum um mánaðamót,“ segir Róbert sem flutti heim fyrir nokkrum árum og hélt uppteknum hætti.
„Ég komst fljótt að því að ein stærsta hindrunin á vegi veitingamanna – og annarra smærri atvinnurekenda – í Reykjavík, er borgarkerfið sjálft. Kröfur leyfisveitenda eru óskýrar og ófyrirsjáanlegar, þannig að veitingamenn sjálfir þurfa að geta í eyðurnar. Kerfið er sömuleiðis svifaseint – umsóknir taka alltof langan tíma - og ekki er alltaf gætt að því að sambærileg mál fái sömu niðurstöðu,“ segir Róbert í grein sinni. Hann segir að tafir og óskilvirkni kosti smærri atvinnurekendur, sem oftar en ekki hafa lítið á milli handanna, ómælda fjármuni.
„Mín skoðun er sú að borgarkerfið eigið að virka eins og framúrskarandi knattspyrnudómari. Það er oft sagt að bestu dómararnir séu þeir sem þú tekur ekki eftir. Hið sama á að gilda um um borgarkerfið, það á að vera þarna til að styðja við atvinnurekendur og liðka fyrir því að frábærar hugmyndir komist til framkvæmda. Borgin á ekki að vera andstæðingur þeirra sem vilja hefja rekstur, og borgaryfirvöld eiga ekki að vera í aðalhlutverki. Þvert á móti gegnir borgin mikilvægu stoðhlutverki,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:
„En það þýðir ekki að tuða af hliðarlínunni, heldur þarf að vaða í verkið sjálfur. Þess vegna ákvað ég að hefja þátttöku í pólitík. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sem styður við smærri atvinnurekendur. Flokkur sem ætlar að lækka álögur, einfalda leyfiskerfið og bæta aðgengi að atvinnulóðum í borginni. Bætt rekstrarumhverfi í Reykjavík er öllum til hagsbóta. Við þurfum enn betri stemmningu í Reykjavík.“