Róbert Árni Hreiðarsson, sem kallaði sig Robert Downey á seinni árum er látinn.
Róbert lést þann 19. júní síðastliðinn samkvæmt Íslendingabók en hann var búsettur á Spáni síðustu æviárin.
Róbert starfaði sem lögmaður en var sakfelldur árið 2008 fyrir víðtæk kynferðisbrot gegn unglingsstúlkum. Hann var í kjölfarið dæmdur í þriggja ára fangelsi. Róberti var veitt uppreist æru árið 2016 og gat því hafið lögmennsku á ný.
Ákvörðunin um uppreist æru vakti mikla ólgu í samfélaginu og leiddi til stjórnarslita er Björt framtíð sleit ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Viðreisn í september 2017.