Róbert bauð skólanum að nota hótelið – Gaman að geta hjálpað

Róbert Guð­finns­son, at­hafna­maður á Siglu­firði, sendi Erlu Gunn­laugs­dóttur, skóla­stjóra Grunn­skóla Fjalla­byggðar, bréf þar sem hann bauð skólanum af­not af húsum Sigló hótels á Siglu­firði.

Greint er frá þessu á vefnum Trölli.is.

Þetta hefur orðið til þess að ung­linga­stig skólans þarf ekki að sinna námi sínu í fjar­námi eins og flest benti til að yrði raunin eftir hertar sam­komu­tak­markanir vegna CO­VID-19.

Trölli hefur eftir Krist­björgu Eddu Jóhanns­dóttur, hótel­stjóra Sigló hótels, að það væri gaman að geta hjálpað og þetta væri fram­lag hótelsins til sam­fé­lagsins á þessum erfiðu tímum.

Í frétt Trölla kemur fram að skólinn eða sveitar­fé­lagið þurfi ekki að borga krónu fyrir af­not af hús­næði hótelsins.