Ritstjóri Viðskiptamoggans líkir Ágústi Ólafi við Trump

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar skýtur í pistli sínum á Facebook í dag á Sjálfstæðisflokkinn þar sem hann gefur í skyn að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, sé „raunverulegur leiðtogi“ flokksins en ekki Bjarni Benediktsson. Ritstjóri Viðskiptamoggans segir viðbrögð Ágústs helst minna á Trump Bandaríkjaforseta.

Ágúst stakk upp á því nýlega að ríkið fjölgaði starfsfólki, til dæmis kennurum, lögreglumönnum og sjúkraliðum en Sjálfstæðisflokkurinn tók illa í það og kallaði formaður flokksins Bjarni Benediktsson hugmyndina „verstu hugmynd“ sem hann hefði heyrt.

Málið var tekið fyrir í Staksteinum Morgunblaðsins í dag og er þar frekar mælst til þess að hið opinbera fækki störfum til að veita atvinnulífinu og verðmætasköpun „eðlilegt svigrúm“. Ágúst tjáði sig um þetta á Facebook og ýjaði að því að Davíð Oddsson skrifaði Staksteina:

„Þegar ég stakk upp á þeirri hugmynd að við ættum m.a. að fjölga hjúkrunarfræðingum, kennurum, sjúkraliðum, barnaverndarfólki, skólaliðum, löggum og öðrum opinberum starfsmönnum urðu Sjálfstæðismenn alveg dýrvitlausir. En það er ekki nóg að þeim fannst þetta vera “versta hugmynd” allra tíma heldur stingur þeirra raunverulegi leiðtogi nú beinlínis upp á, að við ættum frekar að fara að reka opinbera starfsmenn. Er ekki kominn tími að Sjálfstæðisflokkurinn fari að gera eitthvað annað en að sitja að stjórn landsins?“

Stefán Einar Stefánsson, ritstjóri Viðskiptamoggans, svarar Ágústi í athugasemd við Facebook-færsluna. „Finnst þér málefnalegt að tala með þessum hætti um ritstjórnarefni Morgunblaðsins? Minnir helst á Trump og aðferðir hans í samskiptum við fjölmiðla - munurinn er sá að hann hefur ekki verið með puttana í rekstri sumra þeirra eins og þú,“ segir Stefán.

„Þú munt væntanlega styðja hugmyndir um að þitt gamla fjölmiðlafélag fái hlutfallslega hærri styrki frá hinu opinbera en þeir fjölmiðlar sem raunverulega skipta máli fyrir samfélagið,“ segir hann svo.