Rykið verður dustað af Ritstjórunum í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, en þar mæta eins og vanalega þrautreyndir fréttamenn til að rýna í helstu fréttamál líðandi stundar. Ritstjórarnir hafa verið í leyfi frá því kórónuveirufaraldurinn reið hér yfir, en nú þegar tveggja metra fjarlægðarreglan er orðin valkvæð koma þeir aftur á dagskrá.
Að þessu sinni fær Sigmundur Ernir til sín þá Boga Ágústsson og Jón Kaldal til að fara yfir horfurnar í Ameríku á tímum ofsafengnustu mótmæla seinni ára, stöðu Trumps á kosningaári, kvótaarfinn í íslensku samfélagi, átökin á milli heilbrigðisráðherra og Kára Stefánssonar og að lokum áhrif kórónaveirufaraldursins á afstöðu fólks til loftslagsmála. Og það er ekki komið að tómum kofanum hjá þeim Boga og Jóni í þessum málum öllum, enda báðir vel að sér í fréttasögu síðustu áratuga.