Rit­stjórar Stundarinnar stíga fram eftir tíðindi dagsins: „Loksins!“

Ingi­björg Dögg Kjartans­dóttir og Jón Trausti Reynis­son, rit­stjórar Stundarinnar, stíga fram saman á Face­book þar sem þau birta fal­lega færslu í kjöl­far frétta dagsins af því að þau séu orðin par og nú flutt inn saman.

Fréttir af ráða­hagi rit­stjóranna tveggja þustu inn á alla helstu vef­miðla landsins í dag en DV greindi fyrst frá því að þau væru nú skráð á sama heimilis­fang. Jón var áður bú­settur í Vestur­bænum en setti íbúð sína á sölu í fyrra og búa turtil­dúfurnar nú saman á Sel­tjarnar­nesi.

„Ef það er eitt­hvað sem heims­far­aldrar og náttúru­ham­farir kenna manni er það að hika ekki við að gera það rétta í lífinu,“ skrifa þau Jón og Ingi­björg í fal­legri færslu.

„Við höfum unnið saman, ferðast saman, hangið saman, stofnað fyrir­tæki saman og lært saman og nú höfum við á­kveðið að vera saman og búa saman.“

Ó­hætt er að segja að tíðindin gleðji marga en rúm­lega fimm­hundruð manns hafa brugðist við færslunni. Þá hafa tæp­lega hundrað skrifað at­huga­semd undir og óska allir parinu vel­farnaðar. Nú­verandi fram­bjóðandi Sam­fylkingarinnar í Reykja­vík og fyrr­verandi blaða­maður Stundarinnar, Jóhann Páll Jóhanns­son, skrifar ein­fald­lega: „Loksins!“

Ef það er eitthvað sem heimsfaraldrar og náttúruhamfarir kenna manni er það að hika ekki við að gera það rétta í lífinu....

Posted by Jón Trausti Reynisson on Tuesday, 2 March 2021