Rithöfundurinn Ingimar Er­lend­ur Sig­urðsson er látinn

Ingimar Er­lend­ur Sig­urðsson rit­höf­und­ur er lát­inn, 87 ára að aldri. Þetta kom fram í Morgunblaðinu í dag.

Ingimar Er­lend­ur fædd­ist á Ak­ur­eyri 11. des­em­ber 1933, son­ur hjón­anna Sig­urðar Ingimars Helga­son­ar mynd­list­ar­manns og Friðbjarg­ar Jóns­dótt­ur hús­móður. Hann flutti með fjöl­skyld­unni til Reykja­vík­ur er hann var fimm ára og gekk í Miðbæj­ar­skól­an­n, Aust­ur­bæj­ar­skól­a, lauk lands­prófi frá Ingimars­skóla og próf­um frá Kenn­ara­skóla Íslands 1957.

Ingimar Er­lend­ur starfaði sem blaðamaður við Morg­un­blaðið 1959-62, var rit­stjóri og ábyrgðarmaður Frjálsr­ar þjóðar 1962-63. Síðan helgaði hann líf sitt ritstörfum.

Fyrsta bók Ingimars Er­lend­ar var ljóðabók­in Sunn­an­hólm­ar, sem kom út 1959. Tveim­ur árum síðar kom út smá­sagna­safnið Hveiti­brauðsdag­ar og árið 1965 kom út

Þekktasta skáld­saga Ingimars Erlends er eflaust Borg­ar­líf og vakti hún tals­verða at­hygli þegar hún kom út árið 1965. Fleiri bækur eftir hans eru til dæmis ljóðabókin Sunnanhólmar, sem kom út árið 1959 og var hans fyrsta ljóðabók, og smásagnasafnið Hveitibrauðsdagar, sem kom út árið 1967.

Fyrri kona Ingimars var Ragn­heiður Jóns­dótt­ir, fyrrverandi kenn­ari í Reykja­vík. Þau skildu. Börn þeirra eru Huld, Friðbjörg Helga og Þóra.

Seinni kona Ingimars var Mar­grét S. Blön­dal geðhjúkr­un­ar­fræðing­ur. Hún lést árið 2006. Börn þeirra eru Sig­ríður Freyja og Sig­urður Víf­ill.