Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, er gestur Einkalífsins á Vísi í dag en síðustu tólf mánuðir í lífi Rikka hafa verið sveiflukenndir.
Rikki hefur verið útvarpsmaður í tuttugu ár, einn vinsælasti íþróttalýsandi landsins, veislustjóri og plötusnúður.
Fyrir tæplega ári missti hann náinn stjúpföður sinn sem lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein og fyrir tveimur mánuðum missti hann föður sinn.
„Þetta sat lengi í mér og ég er varla búinn að syrgja hann þegar annað áfall dynur yfir. Hann var bráðkvaddur. Pabbi var minn mesti stuðningsmaður þegar kom að íþróttalýsingum og hann kom með mér á mjög marga leiki og sérstaklega þegar við vorum að taka þessi roadtrip þegar maður er að fara á Sauðárkrók eða til Vestmannaeyja. Ég átti að fara lýsa FH-Valur í handboltanum og hann ætlaði að koma með mér á leikinn. Ég fæ símtal frá ömmu minni og pabbi var hjá henni. Það fyrsta sem hún segir við mig, ég get ekki vakið pabba þinn. Hann vaknar ekki. Ég hugsa fyrst, núna er gamla eitthvað farin að kalka. Ég fer til þeirra og pabbi er bara farinn,“ segir Rikki í þættinum.
Hægt er að horfa á þáttinn á vef Vísis hér.