Ríkisvaldið leysir ekki vandamálin

„Ég er unnandi frelsis og ég vil ekki að ríkið sé með nefið ofaní hvers manns koppi – aldeilis ekki“, segir Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstarréttadómari sem er í viðtali hjá Sigmundi Erni í þættinum 21 í kvöld á Hringbraut.

Að banna hluti hefur farið vaxandi segir Jón steinar: „Við sjáum það á mörgum sviðum, það er eins og fólk sem segist aðhyllast frelsi á tyllidögum, að um leið og það sér að eitthvað er að þá fer það að kalla eftir bannreglum og ég er bara andvígur því“.

Hann segist enn á móti ríkisrekstri. „Ég segi bara að frjálsir menn geta yfirleitt leyst betur úr nær öllum vandamálum sín á milli“.

En um borgarlega ábyrgð segir Jón Steina: „Lífhamingjan byggir á því að njóta frelsis en taka fulla ábyrgð á því sem maður gerir“

Jóns Steinar hefur nýlaga sent frá sér bókina Umbúðalaust þar sem hann birtir hugleiðingar sínar í hálfa öld – og segir þar að íslenskt samfélag sé bæði spillt og prinsipplaust.

Hann er hjá Sigmundi Erni í þættinum 21 á Hringbraut, þriðjudagskvöld 18.ágúst KL.21.

Flakka má í tíma til að finna valin viðtöl á Hringbraut og einnig eru þau birt á hringbraut.is sólarhring síðar. Hér undir þættinu 21 á Hringbraut.