Greinilegur skaði - siðleysingi við völd?


Ríkisstjórnin er í raun fallin, enda er enginn stuðningur meðal sjálfstæðismanna við forsætisráðherra, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Þá er laskað traust innan Sjálfstæðisflokks gagnvart eigin forystu, enda voru bæði Bjarni Benediktsson formaður flokksins og Ólöf Nordal varaformaður með fé í skattaskjólum skv. Panama-skjölunum, umfangsmesta gagnaleka heims sem kallaður hefur verið frétt aldarinnar.

Landið logar af reiði

Bæði þingmenn meiri- og minnihlutans á Alþingi hafa staðfest í samtölum við Hringbraut að ekki sé spurning hvort heldur hvenær tíðindi verða kynnt og hver þau verða. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands kom í morgun fljúgandi með einkavél til landsins vegna ástandsins, hann breytti áætlun sinni á ferðalagi utan landsteinanna til að koma heim. Landið logar af reiði. Talið er að aldrei hafi fleiri mótmælt en á Austurvelli í gær. Þeim mótmælum mun ekki linna fyrr en forsætisráðherra fer frá eftir því sem fram hefur komið í samtölum Hringbrautar við almenning á Austurvelli. E.t.v. verður niðurstaðan kosningar innan 3ja mánaða.

Sigmundur Davíð er rúinn trausti eftir því sem fram kom á Austurvelli í gær, en þar lýsti ein kona úr hópi almennings að hún hefði aldrei orðið eins reið á ævinni og þegar hú sá forsætisráðherra segja ósatt í viðtalinu sem endaði með því að hann stóð upp og gekk á brott í Ráðherrabústanum. \"Þetta er fyrir neðan allar hellur,\" voru lokaorð Sigmundar og meirihluti þjóðarinnar virðist því sammála. Fjölmargir vilja líka ð fleiri en hann segi af sér. Hringbraut sýndi sérstakan sjónvarpsþátt í beinni útsendingu í gærkvöld - Guð blessi Ísland - aftur! - vegna þess neyðarástands sem komið er upp í íslenskum stjórnmálum. Ólafur Arnarsson hagfræðingur sagði í þættinum að málið snerist ekki um að allt fé í eigu skattaskjólsfélaganna hefði verið gefið upp. Það sé ástæða fyrir því að menn geymi fé í skattaskjólum. Ótækt sé að ráðandi stjórnmálamenn séu í þeim hópi. Þá sé fullkomin mótsögn að menn séu með fé í krónuskjóli á sama tíma og venjulegir Íslendingar takast á við galla krónunnar. Komið sé upp stórt vandamál fyrir þá pólitísku leiðtoga sem hafa barist fyrir krónuhagkerfi. Forsætisráðherra hafi í raun verið settur af í gær með fjöldamótmælunum en talið er að um 22.000 manns hafi mótmælt.

Afneita eigin foringja
Hringbraut birti fyrst fjölmiðla í gærkvöld frétt um að Sigmundur Davíð væri fallinn af stalli sem foringi framsóknarmanna í eigin kjördæmi, Norðausturkjördæmi. Sigmundur er fyrsti þingmaður NA-kjördæmis og hefr til þessa notið mikilla vinsælda meðal norðanmanna. Hópur manna í Framsóknarflokknum á Akureyri, þar á meðal báðir bæjarfulltrúar Famsóknar, krefjast nú afsagnar hans og er til merkis um algjöran viðsnúning vegna afhjúpunar rannsóknarblaðamanna á eigum hans í Tortóla. Í hópnum sem nú vill að hann stígi til hliðar eru fyrrverandi bæjarfulltrúar framsóknar líkt og Jóhannes Gunnar Bjarnason sem áður stóð þétt við hlið forsætisráðherra, studdi hann og talaði opinberlega mjög fyrir skuldaleiðréttingunni svo nokkuð sé nefnt. Ólafur Arnarson segir að auðvitað eigi fjármálaráðherra ekki að eiga fé í skattaskjóli ekki fremur en Sigmundur. Hann lýsti í þættinum á Hringbraut í gær að hann væri undrandi á að ekki væri ein einasta afsögn komin fram.

Orðspor í hættu út á við
Þá sagði Margrét Kristmannsdóttir, fyrrum formaður Samtaka verslunar og þjónustu í sjónvarpsþætti Hringbrautar í gær, fyrstu beinu útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar til þessa, að orðspor landsins væri í hættu út á við vegna þeirrar gríðarmiklu umfjöllunar sem hneykslismál forsætisráðherra Íslands út um allan heim. Hún sagði að margir sem störfuðu í alþjóðlegu umhverfi væru búnir að fá tölvupósta og símhringingar frá birgjum þar sem spurt væri um stöðuna. \"Það er greinilegt að við erum að verða fyrir ímyndarskaða en við vitum ekki hve mikill hann verður,\" sagði Margrét. Hringbraut hefur staðfastar heimildir um fjölda afbókana í gistingu hér á landi þar sem útlendingar hafa hætt við komu vegna spillingar.

Segir Sigmund siðleysingja

Siðleysingi er hér við völd,\" sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata í samtali við Hringbraut í gærkvöld um forsætisráðherra. Hún segir að leki Panamaskjalanna sýni að yfirgripsmikil spilling eigi sér stað í efstu lögum samfélagsins og við því verði að bregðast.

Samantekt: Björn Þorláksson.