Litlar breytingar eru á fylgi flokka samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup ef miðað er við síðasta Þjóðarpúls.
„Nær 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, næstum 15% Samfylkinguna, hartnær 14% Vinstri græn, rúmlega 13% Pírata, rösklega 10% Viðreisn, ríflega 9% Miðflokkinn, nánast 7% Framsóknarflokkinn, nálega 4% Sósíalistaflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins,“ segir í tilkynningu sem Galluð sendi frá sér.
Þá kemur fram að nær 12% hafi ekki tekið eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 9% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Slétt 55% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina. Samanlagður stuðningur ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks, mælist 44,3% og myndi ríkisstjórnin því falla ef þetta yrði niðurstaða kosninganna á næsta ári.
Um var að ræða netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 30. september síðastliðinn. Heildarúrtaksstærð var 9.673 og þátttökuhlutfall var 52,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.