Ríkissáttasemjari boðaði til blaðamannafundar í Karphúsinu klukkan 11, vegna kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.
Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, sagði á fundinum að allt stefni í ófriðarvegferð sem muni hafa slæm áhrif á smfélagið allt. Staðan sé sú að það sé búið að semja við hartnær alla almennum vinnumarkaði.
Eftir stendur Efling ein og hefur Sólveig Anna hótað skæruliðaverkföllum..
Aðalsteinn lagði fram miðlunartillögu í kjaradeilunni. Félagsmenn Eflingar fái sömu launahækkun og samið var um við Starfsgreinasambandið. Miðlunartillaganfelur einnig í sér að allir fái afturvirkar launahækkanir frá 1. nóvember.
Félagsmenn Eflingar greiða atkvæði um miðlunartillöguna og aðildarfélög Samtaka atvinnulífsins greiða einnig atkvæði.
Með þessu er verið að taka deiluna af samningsaðilum á samningaborðinu og leggja samninginn í dóm félagsmanna Eflingar.
Ef Eflingarfólk samþykkir samninginn verður það talið gildur kjarasamningur.
„Auðvitað er ég að stíga inn,“ sagði Aðalsteinn á fundinum og bætti við að það væri ekki eftir neinu að bíða.
Um er að ræða aðgerð sem ríkissáttasemjara er heimilt að fara í lögum samkvæmt.