Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða Elko hér á landi rúmar 18,7 milljónir króna. Ástæðan er sú að gjald, sem ríkið lagði á vegna innflutnings fyrirtækisins á raftækjum í ákveðnum tollflokkum, átti sér ekki fullnægjandi stoð í lagaheimild. Álagningin var því ólögmæt og gjöld oftekin.
Gjaldið sem um ræddi nam 0,15 prósentum af tollverði viðkomandi vöru en á tímabilinu 15. janúar 2016 til 15. desember 2019 lagði ríkið á og innheimti samtals 18.771.555 krónur frá Elko á þessum grunni. Elko sendi bréf til tollstjóra í lok árs 2019 þar sem farið fram á endurgreiðslu umræddra gjalda en erindinu var hafnað með bréfi sem barst í byrjun þessa árs.
Elko hélt því fram að gjaldtakan teljist skattur í skilningi stjórnarskrárinnar og til að um gilda heimild til skattlagningar sé að ræða þurfi lög að kveða á um hverjir séu skattskyldir, við hvað skatturinn skuli miðast og hver sé fjárhæð hans.
Ákvæði laga, í þessu tilviki nr. 146 frá árinu 1996, sem eftirláti stjórnvöldum ákvörðunarvald um fjárhæð skatts uppfylli ekki þessar kröfur. Með umræddu ákvæði hafi löggjafinn ekki tekið endanlega afstöðu til þess hver skuli vera fjárhæð þess gjalds sem þar sé heimilað að leggja. Þvert á móti sé stjórnvöldum fengin heimild til að leggja á gjald sem megi vera allt að 0,15% af tollverði innfluttrar vöru. Með ákvæðinu hafi því aðeins verið settur rammi utan um fjárhæð gjalds en ráðherra að öðru leyti falið ákvörðunargjald. Þar sem ákvæðið uppfylli ekki lagaáskilnaðarkröfur stjórnarskrárinnar sé það ekki viðhlítandi grundvöllur álagningar skatts.
Ríkið hélt því fram að gjaldtakan væri lögmæt skattheimta en því var dómari ósammála. Ríkinu var því gert að greiða Elko rúmar 18,7 milljónir króna auk vaxta.
Dóminn má lesa í heild sinni hér.