„Sennilega mun kalt mat þessara sjóða verða að leggja ekki meira fjármagn til félagsins og það væri í samræmi við nýjar leiðbeiningar Fjármálaeftirlits Seðlabankans til lífeyrissjóðanna um að stíga ekki skref sem geti stofnað fjármunum sjóðsfélaga í hættu,“ segir Stefán Einar Stefánsson viðskiptaritstjóri á Morgunblaðinu í Hlaðvarpi Viljans þar sem hann og Hörður Ægisson viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins ræða við Björn Inga Hrafnsson.
Staða Icelandair er ekki máluð björtum litum í viðtalinu og kemur þar fram að óhjákvæmilegt sé að ríkið komi að björgun félagsins, enda tapi það tíu milljörðum á mánuði nú um stundir.
Stefán Einar, sem skrifaði nýlega bók um gjaldþrot WOW air, segir að gjaldþrotaferlið þyrfti að hefjast sem fyrst, félagið verði svo endurreist með tilstyrk ríkisins og svo komi hluthafarnir að borðinu.
„Við verðum einfaldlega að taka séríslenska leið við endurreisn flugfélagsins rétt eins og við fórum séríslenska leið við endurreisn bankakerfisins í árslok 2008.“ segir Stefán einnig.