Ríkið keypti um­deildan hús­grunn á Þing­völlum á 35 milljónir króna

Um­deildur hús­grunnur á sumar­húsa­lóð á Þing­völlum er orðinn eign ríkisins eftir að fjár­mála­ráðu­neytið keypti hann á 35 milljónir króna. Grunnurinn hefur staðið nær ó­hreyfður frá árinu 2008 en hann stendur á leigu­lóð sem er í eigu ríkisins.

Frétta­blaðið fjallar um málið í dag.

Fram­kvæmdir við grunninn voru stöðvaðar 3. októ­ber 2008 eftir að byggingar­stjóri sagði sig frá verkinu. Til stóð að byggja 159 fer­metra hús á lóðinni en ekkert varð af því. Grunnurinn var í eigu hjónanna Boga Páls­sonar og Sól­veigar Láru Magnús­dóttur en fyrir um einu og hálfu ári komst hann í eigu föður Boga, Páls Samúels­sonar.

Einar Á. E. Sæ­munds­son þjóð­garðs­vörður segir við Frétta­blaðið að sumar­bú­staður muni ekki rísa á lóðinni og raunar verði ekki fleiri sumar­bú­staðir byggðir innan þjóð­garðsins. Enn er þó ó­víst hvað verður gert við grunninn.

„Viljum við nýta þetta mann­virki og breyta í að­stöðu­sköpun fyrir þjóð­garðinn eða förum við í mat á því að láta fjar­lægja það? Í raun sé ég alveg mögu­leikann á því að geta nýtt þetta,“ segir Einar í Frétta­blaðinu.