Ríkharður Daðason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, varð vonsvikinn í gærkvöldi þegar forysta ÍBR mætti ekki til að afhenda kvennaliði Þróttar bikarinn fyrir sigur í Reykjavíkurmótinu.
Fréttavefur 433 á DV.is greinir frá þessu en Þróttur varð Reykjavíkurmeistari í gærkvöldi eftir sigur á Fjölni í úrslitaleik í Egilshöll. Þróttur vann verðskuldaðan 6-1 sigur og var fögnuður leikmanna innilegur í leikslok. Leikmenn bjuggust að sjálfsögðu við því að fá afhentan bikar og urðu vonbrigðin mikil þegar í ljós kom að enginn frá ÍBR var mættur.
„Sorgleg uppákoma í Egilshöll í kvöld þar sem forysta ÍBR mætti ekki til að afhenda kvennaliði Þróttar bikarinn fyrir sigur í Reykjavíkurmótinu sem sá fyrsti í þeirra sögu,“ sagði Ríkharður á Facebook-síðu sinni sem 433 vitnar til. Ríkharður á dóttur í Þrótti.
Valur varð Reykjavíkurmeistari í karlaflokki og fengu þeir afhent sín verðlaun eftir úrslitaleikinn.
„Ég hélt við værum komin lengra en þetta,“ segir Ríkharður.