„Í hvaða heimi má forsætisráðherra ekki dansa, drekka og skemmta sér? Er það vegna þess að hún er ung, falleg kona sem það þykir ekki viðeigandi. Af því að ég er nokkuð viss um að ráðherrar hafi nú í gegnum tíðina skemmt sér allskonar.“
Þetta skrifar Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, í færslu á Facebook um mál Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, en líkt og flestir vita hefur myndband af henni skemmta sér verið í mikilli dreifingu.
Ingibjörg minnist á nokkur dæmi um hegðun karlkyns stjórnmálamanna sem henni virðist þykja talsvert ámælisverðari en það sem Sanna var gripinn við. Hún minnist til að mynda á ummæli Jóns Baldvins um „háklassahórur“.
„Fyrrverandi ráðherra lýsti til dæmis samskiptum sínum við vændiskonur í opinberum heimsóknum: „Í Austur-Evrópu er alltaf fullt af háklassahórum á slíkum stað. Til að fá frið bauð ég einni með mér í mat. Hún var sirka átján,“ sagði hann meðal annars.“
Ingibjörg minnist á fleiri dæmi frá Íslandi.
„Annars minnir þetta fíaskó að forsætisráðherra Finnlands þurfi að skila fíkniefnaprófi á það þegar Áslaug Arna mætti í sjónvarpsviðtal til að ræða kynferðislega áreitni gagnvart stjórnmálakonum og einhver karlfúskur hneykslaðist yfir prófíl-myndinni hennar, sem var bara falleg mynd af ungri konu en honum þótti of þokkafull, eða það lá í orðum hans. Eða þegar Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari þurfti að undirgangast opinbera umræðu um brjóstaskoruna á sér í miðjum réttarhöldum yfir morðingja. Og Klausturmálið eins og það lagði sig, alla kvenfyrirlitninguna sem birtist í orðum þeirra sem þar sátu. Þar á meðal fyrrverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra sem töldu sig hafa ríkulegt frelsi til að vera fullir og ruglaðir.“
Ingibjörg endar síðan skrif sín á þessum orðum: „En á endanum eru konur bara hot or not. Verst að það er hvorki hægt að virða þær fyrir það sem þær eru ef þær eru of sexý og skemmtilegar né ef það „fellur hratt á þær“.“