Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, vill að nafn einstaklingsins, sem sveikst undan sóttkví með þeim afleiðingum að hópsmit kom upp, verði birt opinberlega.
„Af hverju er ekki upplýst um það hver smitdólgurinn sem sveikst undan sóttkví er? Fjöldi manns, þar af börn, þarf að gjalda fyrir framferði hans,“ segir Reynir á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Sjá einnig: Yfir 20 smit greindust í gær: Kári segir að nú sé aðeins tvennt í stöðunni
Eins og komið hefur fram má rekja hópsmit sem kom upp í leikskólanum Jörfa til sóttvíarbrots mannsins. Umræddur einstaklingur kom til landsins fyrir tveimur vikum. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, ræddi málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi og sagði:
„Þetta er breska afbrigðið og viðkomandi svaraði ekki í síma þegar við hringdum og náðum ekki í hann þannig og þá var farið í nánari skoðun sem leiddi til lögregluafskipta og þetta tók dálítinn tíma að ná utan um þetta, að finna viðkomandi og síðan fór hann á sóttkvíarhúsið í framhaldi.“
Þrettán smit greindust á laugardag og í morgun var greint frá því að yfir tuttugu hefðu greinst með smit hér á landi í gær. Ljóst er að veruleg hætta er á að þær tilslakanir sem gripið var til í síðustu viku, vegna góðrar stöðu í faraldrinum, verði dregnar til bakar.
Margir taka undir með Reyni og vilja að nafn umrædds einstaklings verði birt. Guðjón Friðriksson, rithöfundur og sagnfræðingur, segir að Alþingi eigi einfaldlega að setja lög um að skikka alla sem koma til landsins í sóttkví á hóteli. „Þetta verður aldrei í lagi öðru vísi.“