Reynir verið tvo mánuði án sykurs og hveitis og segir frá leyndar­málinu

„Undan­farna tvo mánuði og tvo daga hef ég verið án sykurs og hveitis,“ segir Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mann­lífs.

Reynir, sem er einnig leið­sögu­maður hjá Ferða­fé­lagi Ís­lands, gerði rót­tækar breytingar á lífs­stíl sínum fyrir um tíu árum og hefur hann ekki litið um öxl síðan þá.

Reynir segir á Face­book-síðu sinni að afeitrunin hafi upp­haf­lega átt að standa í mánuð en var fram­lengd þegar septem­ber var á enda. Jafn­framt var á­kveðið að það yrðu tvær undan­þágur í mánuði frá sykur­banninu, en í októ­ber var önnur þeirra að­eins nýtt.

Þetta hefur skilað sér hjá Reyni því sykur­þörfin var að mestu horfin og þá voru fimm kíló farin.

„Kenningar eru uppi um að það taki 60 daga að venja sig af ó­þverra á orð við sykur. Mér sýnist það standast. Mig langar ekki í sykraða vöru í dag. Hveiti­leysið er að­eins meira mál en að snýst um of­fram­boð af vöru sem inni­heldur hveiti,“ segir hann.

„Þessu til við­bótar höfum við í banda­laginu tekið upp þann sið að borða að­eins græn­meti í fimm daga í viku. Það átti reyndar að vera trúnaðar­mál en ég stenst ekki mátið,“ segir Reynir og bætir við að fyrsta græn­metis­vikan hafi gengið fínt framan af en á föstu­degi hafi verið komin klígju­til­finning.

„Þessi vika fer vel af stað. Dýrindis Gul­róta­súpa að hætti gjald­kerans og melóna í eftir­rétt, sló í gegn. Vonandi er sykur­fíknin að baki eftir afeitrunina. Reynslan segir mér þó að sykur­djöfullinn liggur í leyni. Sykur­fíknin er systir á­fengis­fíknarinnar. Varð­staðan má aldrei bregðast. Við stefnum á sykur­snauð jól.“