Reynir veikur fyrir ástar­pungum: „Glíman við of­þyngd er á köflum hörð“

Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mann­lífs, segir bar­áttuna við of­þyngd ekki vera auð­velda en hann greindi frá því fyrr í dag að hann hafi ekki borðað síðan á sunnu­dags­kvöld og að fastan hafi reynst honum góð. Hann hefur verið opinskár um baráttu sína á Facebook þar sem hann tjáir sig á einlægan og skemmtilegan hátt.

Í tengslum við glímuna sína við of­þyngd greinir hann frá á­huga­verðu at­viki á Face­book síðu sinni um ástar­punga. Að hans sögn hefur hann gert undan­tekningar á því sem hann má ekki borða og segir að þar beri hæst að nefna „hland­gulu ástar­pungana í Geira­bakaríi í Borgar­nesi.“

„Ég hef á­kveðið að mér sé heimilt að kaupa og inn­byrða tvo slíka í hverri vestur­för. Í liðinni viku brá ég mér á æsku­slóðirnar til að hitta móður mína, önnur ætt­menni og vini,“ segir Reynir í færslunni en hann segir fitu og sykur vera sína verstu veik­leika.

Sjá einnig: Reynir hefur ekki borðað í fjóra daga

Þegar Reynir mætti í bakaríið á­kvað hann þó að taka tvo ástar­punga til við­bótar fyrir móður sína. „Ég greiddi með á­nægju og hélt út í borg­firska vorið og inn í bif­reiðina. Ég fékk mér pung í ró­leg­heitunum og ók af stað með þrjá punga í poka,“ segir Reynir og fljót­lega fékk hann sér annan þannig eftir stóðu tveir sem hann hafði ætlað að gefa móður sinni.

„Við hlið mér voru gjafa­pungarnir tveir. Í Bröttu­brekku sótti að mér græðgi. Ég hugsaði með mér að mamma þyrfti varla tvo punga, smá­vaxin konan. Ég skaut höndinni ofan í pokann og beit í punginn. Um það bil sem Dalirnir opnuðust var pungurinn búinn,“ segir Reynir enn fremur.

Þannig stóð eftir einn pungur en freistingin reyndist of mikil fyrir Reyni. „Öðru hvoru gjóaði ég augunum á ein­mana­legan punginn. Mér varð hugsað til móður minnar. Lík­lega var hún ekkert fyrir svona punga. Ég mundi ekki til þess úr bernsku minni að hún væri í pungunum. Hún var meira fyrir kleinur,“ segir Reynir og bætir við að hann hafi að lokum á­kveðið að borða þann síðasta.

Færslu Reynis í heild sinni má sjá hér fyrir neðan: