Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, þvertekur fyrir það að grein sem hann birti í gær, Feita fólkið er vandamál, lýsi fordómum.
Hringbraut fjallaði meðal annars um efni greinarinnar eins og DV gerði. Í athugasemdakerfi DV hafa skapast fjörugar umræður um greinina og þar er Reynir gagnrýndur fyrir fitufordóma. Í einni athugasemd segir til dæmis:
„Væri fróðlegt að vita hvernig þessi maður skilgreinir fitufordóma þegar hann talar um að fitufordómar séu að aukast, en kemur svo með heilan haug af röksemdum sem innihalda beina fitufordóma.“
Eins og nafnið á pistli Reynis ber með sér skrifar hann um offitu hér á landi og sagði hann að stjórnvöld þyrftu að gera meira til að forða fólki frá því að glíma við offitu. Það mætti til dæmis gera í formi forvarna og sykurskatts en einnig með því að lækka verð á hollari vörum og hvetja fólk til hreyfingar.
„Við erum að nálgast það ástand sem er á mörgum í Bandaríkjunum þar sem offitusjúklingar eru á nánast við hvert fótmál,“ sagði Reynir meðal annars í grein sinni og bætti svo við á öðrum stað: „Stjórnvöld verða að grípa til mótvægisaðgerða til að bjarga offitusjúklingum úr klóm ofáts og sykurs.“
Í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun svarar Reynir þeim sem telja að hann haf sýnt fordóma með skrifum sínum. Hann segir: „Hef langa reynslu af því að vera feitur og berjast við ofþyngd og samúð mín liggur með öllum sem standa í því basli. Meintir fordómar eiga því ekki við hér, aðeins depurð fyrir hönd allra sem glíma við matarfíkn og von um að fólk nái tökum á ástandinu og auki lífsgæði sín.“