Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, segir að Edda Falak, fjölmiðlakona á Heimildinni, hafi sýnt ótrúlegt taktleysi á föstudagskvöldið.
Edda hefur verið talsvert í umræðunni upp á síðkastið eftir að hafa sagt ósátt um starfsferil sinn í Danmörku á sínum tíma. Edda hefur sannarlega verið áberandi í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi en ýmsir hafa sett spurningarmerki við trúverðugleika hennar eftir að hún var staðin að ósannindum.
Reynir skrifaði pistil á vef Mannlífs í gær þar sem hann fjallar um mál Eddu Falak.
„Sú orrahríð sem geysar vegna ósannsögli Eddu Falak er mörgum áhyggjuefni. Dregið hefur verið fram í dagsljósið að sögur hennar og fjölbreytt ábyrgðarstörf í Danmörku og kynbundið áreiti þeim tengt eru í besta falli uppspuni og trúverðugleiki hennar er í uppnámi,“ segir Reynir.
Hann segir að yfirmenn Eddu á Heimildinni hafi sýnt mikinn drengskap og traust með því að standa með henni í sameiginlegri yfirlýsingu sem þau sendu frá sér. Tekið skal fram að meðal umræddra yfirmanna Eddu eru sonur Reynis, Jón Trausti, og tengdadóttir hans, ritstjórinn Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir.
Hann gerir svo tíst Eddu á föstudagskvöld að sérstöku umtalsefni.
„Í miðju fjölmiðlafárinu eftir yfirlýsinguna var hennar framlag að senda út á Twitter að hún myndi fá bardagamanninn Gunnar Nelson til að afgreiða þá sem færu gegn henni. Færslan var merkt Vikunni með Gísla Marteini til að ná enn meiri dreifingu en ella. Þetta lýsir skilningsleysi hennar á alvöru málsins og ótrúlegu taktleysi gagnvart því fólki sem var að hjálpa henni við að slökkva eldana sem hún hefur kveikt með óheiðarleika sínum.“
Tekið skal fram að Edda skrifaði svo sjálf athugasemd undir tístið tæpum sólarhring síðar þar sem hún sagðist hafa verið að grínast í færslunni.
Reynir rifjar svo upp símtal sem hann fékk frá Eddu Falak fyrir hálfu öðru ári síðan sem hann fjallaði einmitt um í leiðara Mannlífs á sínum tíma og „óhróður“ hennar á Twitter í framhaldinu.
„Edda gerði réttast í því að óska sjálf eftir lausn frá störfum. Þá er þess er beðið að hún komi fram og útskýri undanbragðalaust hvað liggur að baki frásögnum hennar frá þeim tíma þegar hún vann í Danmörku. En því skal haldið til haga að það er þakkarvert af henni að draga fram í dagsljósið kynferðisbrot og annað sem hafði verið hjúpað þögn feðraveldisins,“ segir Reynir í pistli sínum í gær.
Sendi Gunna Nelson á næsta lúser sem fær mig á heilann #vikan
— Edda Falak (@eddafalak) March 24, 2023