Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, er ekki parsáttur við ákvörðun Morgunblaðsins um að slá skjaldborg um minningargreinarnar, líkt og því er lýst í frétt Fréttablaðins um málið. Reynir tjáir sig í sérstökum pistli og segir Moggann lifa á dauðanum og Guðbjörgu Matthíasdóttur, athafnakonu. Ritstjóri Kjarnans, Þórður Snær Júlíusson, fagnar ákvörðuninni.
Fréttablaðið greindi frá því í gærkvöldiað tekin hefði verið sú ákvörðun af Mogganum að setja fyrirvara í blaðið um að óheimilt sé að birta efni úr minningargreinum blaðsins í öðrum miðlum án samþykkis. Segir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra blaðsins, að sumum hafi mislíkað slíkar endurbirtingar og þetta sé viðleitni til að tempra áhyggjur.
Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, miðils sem ítrekað birtir andlátsfréttir úr minningargreinunum um látið fólk af handahófi og birtir á síðu sinni, segir að tilskipun Moggans sé undarleg.
„Morgunblaðið er eitt merkasta fyrirbæri íslenskrar fjölmiðlasögu. Blaðið hefur lifað lengur en allir aðrir fjölmiðlar og lifir enn þrátt fyrir þann auma stimpil að hafa Davíð Oddsson sem ritstjóra. Lestur blaðsins hefur að vísu hrunið á undanförnum árum en blaðið lifir á bónbjörgum og mörg síðustu ár í öndunarvél frá Vestmannaeyjum,“ skrifar Reynir.
Hann bendir á að Guðbjörg Matthíasdóttir, athafnakona í Vestmannaeyjum, hafi dælt milljörðum króna í blaðið til að halda því á lífi.
„En rauði þráðurinn í lífi Moggans er dauðinn. Blaðið hefur haldið úti minningargreinum sem eru talsvert lesnar og tryggja að einhverju marki tilveru blaðsins. Nú hafa stjórnendur blaðsins ákveðið að eigna sér andlátsorðin. Fulltrúi Davíðs Oddssonar, Andrés Magnússon, gaf út þá undarlegu tilskipun um að bannað væri að birta úr minningargreinum nema með sérstöku leyfi.
Þetta stenst enga skoðun og er einungis örvæntingarfull tilraun til að halda í það eina lífsmark sem er að finna utan líflínunnar frá Vestmannaeyjum…“
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fagnar ákvörðuninni í stuttri færslu á Twitter síðu sinni. „Þetta er gott framtak hjá Morgunblaðinu. Einni ömurlegri matarholu lokað.“
Þetta er gott framtak hjá Morgunblaðinu. Einni ömurlegri matarholu lokað. https://t.co/4uXVK8aXuv
— Þórður S. Júlíusson (@thordursnaer) March 12, 2021