Það var vægast sagt ömurleg sjón sem blasti við ritstjóranum og fjölmiðlamanninum Reyni Traustasyni þegar hann kom að bifreið sinni við Úlfarsfell í gærkvöldi.
Reynir er þekktur göngugarpur og hafa líklega fáir Íslendingar farið jafn margar ferðir og hann upp á Úlfarsfelli. Eins og meðfylgjandi myndir sína var búið að brjóta rúðu í bílnum og stela öllu steini léttara.
„Hundabúr, bakpoki fullur af græjum. Ömurleg aðkoma. Lögreglan nennti ekki á staðinn,“ sagði Reynir, sem ritstýrir Mannlífi þessi misserin, í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi, eðlilega sár og svekktur.