Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs og göngugarpur, kveðst vera með ákveðið jólablæti sem brýst gjarnan fram um þetta leyti á ári hverju. Reynir segir frá þessu á skemmtilegan hátt eins og honum einum er lagið í færslu á Facebook.
„Þessu trúr var ég með risastóra jólamynd á flatskjánum mínum og undurfögur jólatónlist færir mér nauðsynlega ró í amstri dagsins. Skyndilega rofnaði útsending frá Youtube og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, tók við af Bing Crosby með White Cristmas,“ segir Reynir.
„Hann horfði þráðbeint í augu mér og með angurværum svip og döprum, örlítið tárvotum augum sagði hann mér að Helgi Seljan væri slæmur maður. Svo kom Björgólfur staðgengill hans og staðfesti þetta með Helga. Samherjarnir eru búnir að koma sér fyrir í jólalögunum mínum. Og það er sama hvað ég spóla. Þeir koma aftur og aftur eins og sending að handan.“
Eins og kunnugt er hefur Samherji verið í herferð undanfarnar vikur og hefur málsvörnin gegn RÚV meðal annars birst í formi myndbanda á YouTube. Ófáir foreldrar hafa eflaust orðið varir við að börn þeirra sitja stjörf fyrir framan sjónvarpið þegar Þorsteinn Már birtist skyndilega á skjánum. Börnin eru þó augljóslega ekki þau einu sem fá auglýsingarnar beint í æð eins og Reynir nefnir hér að framan.