Reynir Traustason, fjölmiðlamaður til áratuga og ritstjóri Mannlífs, segist vera þaulreyndur offitusjúklingur. Reynir hefur náð góðum árangri í baráttunni við aukakílóin með aukinni hreyfingu og bættu mataræði. Í pistli á vef Mannlífs segir hann að til sé lausn og bendir hann á leiðirnar í pistlinum.
„Fyrst þarf fólk að gera sér grein fyrir því að tvennt þarf að koma til bjargar. Fólk þarf að innbyrða minna magn og rétta fæðu. Þá þarf það að auka hreyfingu,“ segir hann og bendir á að fyrsta gangan hans upp Úlfarsfelli hafi tekið þrjár klukkustundir.
„Ég náði að breyta mataræðinu og léttist hratt og örugglega. Ári eftir fyrstu ferðina náði ég að fara upp fjallið á 17 mínútum. Nú er ferðirnar upp fjallið orðnar 1150. Þessi árátta bjargaði lífshamingju og hugsanlega lífi mínu. En þetta er ekkert einfalt,“ segir Reynir og bætir við að hann sé sykurfíkill og þurfi stöðugt að vera á varðbergi.
Reynir hefur haldið fylgjendum sínum á Facebook upplýstum um gang mála að undanförnu, en hann hefur nú verið án sykurs og hveitis í rúma tvo mánuði. Undantekningar eru leyfðar tvo daga í mánuði en í september og október nýtti hann aðeins annan daginn hvorn mánuð.
Hann hefur þegar lést um sex kíló en samhliða breytingum á mataræði fer hann í þrjár fjallgöngur á viku og reynir að hjóla þegar færi gefst.
„Kæri offitusjúklingur. Þín leið er einmitt þarna. Byrjaðu rólega. Taktu út sykurinn en leyfðu þér þó undantekningar sem verða þó að vera fyrirfram ákveðnar. Skyndiákvarðanir eru harðbannaðar. Taktu út kvalirnar sem fylgja sykurbanninu og þú munt uppskera,“ segir Reynir og bætir við að gott sé að setja sér markmið um hreyfingu.
Pistil Reynis má lesa í heild sinni á vef Mannlífs.