Reynir: John Snorri er hóg­vær hetja – „Hann er mér ó­gleyman­legur“

Reynir Trausta­son, einn reyndasti fjöl­miðla­maður landsins, kveðst hafa verið svo heppinn að hafa kynnst fjall­göngu­manninum John Snorra Sigur­jóns­syni á vett­vangi Ferða­fé­lags Ís­lands.

Reynir segir að John Snorri sé einn af okkar fremstu fjall­göngu­mönnum enda toppað marga hæstu tinda heims. Leit að John Snorra og tveimur fé­lögum hans á næst­hæsta fjalli heims, K2, hefur ekki borið árangur en þeirra hefur verið saknað síðan á föstu­dag.

Það er ekki að á­stæðu­lausu að K2 er talið eitt hættu­legasta fjall heims að klífa- ekki síst að vetrarlegi eins og nú. Eins og Reynir bendir á hefur John Snorri unnið marga sigra á fjöllum. Hann kleif K2 að sumar­lagi árið 2017 og var einnig fyrsti ís­lenski karlinn til að komast á topp Manaslu auk þess að hafa klifið Lhot­se og Broad Peak.

„Þegar ég var að spá í að fara á E­verest fundaði hann með mér og gaf góð ráð. Það vakti strax at­hygli mína hve hóg­vær hann var þrátt fyrir alla sína sigra á fjöllum og fús til að miðla af reynslu sinni,“ segir Reynir á Facebook-síðu sinni.

Reynir bætir við að John Snorri hafi svo komið sem leyni­gestur á Úlfars­fell með göngu­hópi Skrefanna vorið 2018. Þar hélt hann tölu á toppnum úr reynslu­banka sínum.

„Ég hugsa hlýtt til hans og fé­laga hans sem mættu ör­lögum sínum við von­litlar að­stæður á því mann­skæða fjalli, K 2. John Snorri er hóg­vær hetja sem heiður var að fá að kynnast. Hann er mér ó­gleyman­legur.“

Í til­kynningu frá fjöl­skyldu Johns Snorra í morgun kom fram að lítil von væri á því að John fyndist á lífi nú þegar myrkur skellur senn á.

„Ljóst er að þegar myrkur skellur á í fjallinu, um 14:00 að ís­­lenskum tíma, er vonin um að þeir finnist á lífi mjög lítil því að­­stæður á fjallinu eru virki­­lega erfiðar og kuldinn mikill,“ sagði Lína Móey, eigin­kona Johns Snorra, í til­kynningunni. Þar kom fram að fjöl­skyldan væri einnig þakk­lát fyrir mikinn stuðning og hlý­hug frá fjöl­mörgum aðilum.