Reynir: „Ís­lenska þjóðin er að þyngjast“ – Tíma­bært að bjarga Ís­lendingum úr klóm of­áts og sykurs

„Ís­lenska þjóðin er að þyngjast. Þetta á sér­stak­lega við um ungt fólk sem margt hvert glímir við of­þyngd,“ segir Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mann­lífs, í pistli á vef Mann­lífs.

Þar skrifar Reynir um of­þyngd og of­fitu og segir hann að við séum að nálgast það á­stand sem finna má víða í Banda­ríkjunum „þar sem of­fitu­sjúk­lingar eru nánast við hvert fót­mál“. Reynir segir þó að á sama tíma og feitum fjölgar á landinu þá aukist for­dómar gagn­vart þessum hópi.

„Á­stæðan fyrir ó­göngum okkar er of­fram­boð af sykruðum vörum, hveiti og hvers­kyns orku­drykkjum. Sykur er eitur sem veldur fíkn ekki síður en á­fengi eða dóp. Sykur er lík­lega dóp feita mannsins,“ segir Reynir og bætir við að þetta fram­boð hafi leitt til þess stjórn­leysis sem veldur því að fjöl­margir glíma við tak­markaða hreyfi­getu.

Reynir segir raunar að of­neysla á mat og sæ­tindum sé okkar stærsti heil­brigðis­vandi og gagn­rýnir stjórn­völd fyrir að gera lítið til að tak­marka neyslu á ó­hollustu.

„Tvær megin­leiðir eru til þess að bjarga fólki. Önnur er sú að stuðla að aukinni hreyfingu með því að leggja stór­aukið fjár­magn til sam­taka sem stuðla að slíku. Hin er að grípa til að­gerða sem tryggja að fólk nærist á heilsu­sam­legri fæði,“ segir hann.

Þá segir Reynir að nauð­syn­legt sé að tak­marka neyslu á sykri og annarri ó­hollustu með skatt­lagningu og tak­mörkun á sykur­notkun. Sykurinn sé eitt versta eitur sem nú­tíma­maðurinn glímir við og hann sé núna að finna í mörgum vin­sælum mat­vælum, mjólkur­vörum þar á meðal.

„Sykur­skattur er eitt sem kemur full­kom­lega til greina. Sá skatt­stofn ætti þó að verða til þess að lækka verð á hollari vörum eða hvetja fólk til hreyfingar,“ segir Reynir í pistlinum og heldur á­fram:

„Stjórn­völd verða að grípa til mót­vægis­að­gerða til að bjarga of­fitu­sjúk­lingum úr klóm of­áts og sykurs. Þar þarf að skoða málin frá öllum hliðum og horfa langt fram á veginn.“

Pistil Reynis má lesa í heild sinni á vef Mann­lífs.