Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, segir að Helgu Völu Helgadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, væri nær að taka málefni Landakots upp í þingnefnd í stað þess að vega að Einari Þorsteinssyni fréttamanni á samfélagsmiðlum.
Reynir gerir mál málanna í dag, umdeilt viðtal Einars við Má Kristjánsson yfirlækni smitsjúkdómadeildar Landspítalans í Kastljósi í gærkvöldi, að umtalsefni í pistli á vef Mannlífs. Einar hlaut nokkuð harða gagnrýni vegna viðtalsins, einkum frá Helgu Völu Helgadóttur.
Sjá einnig:
Einar svarar eftir umdeilt viðtal: „Ég var bara mjög kurteis og greip lítið frammí“
Einar: Færsla Helgu Völu til þess fallin að særa fram tröll
Reynir kemur Einari hins vegar til varnar í pistlinum og segir að hann hafi einungis gert það sem góðum fréttamanni ber að gera. Endurtaka spurningarnar ef ekki fást svör.
Reynir segir að ótrúleg þöggun sé í gangi um óhugnaðinn á Landakoti.
„Alls hafa 12 manns látið lífið og tugir manna veikst vegna veirunnar sem þar geysaði um stofur og ganga og barst þaðan á önnur hjúkrunarheimili. Þessi andlát voru ótímabær og þurftu ekki að verða ef fólk hefði lesið ástandið rétt og gætt að sóttvörnun innan spítalans.“
Reynir segir að það hafi verið furðugjörningur að Már, undirmaður forstjóra Landspítalans, hafi fengið það hlutverk að rannsaka atvikin á Landakoti.
„Lagt var upp með það að ekki stæði til að kenna neinum um eða hengja einhvern í hæsta gálga. Það er eðlilegt sjónarmið að gæta allrar varúðar í rannsókninni en eins óeðlilegt og hugsast getur að fela starfsliði spítalans að rannsaka sjálft sig.“
Reynir vindur sér síðan að viðbrögðum Helgu Völu eftir viðtal Einars við Má í Kastljósi í gærkvöldi. Helga Vala sagðist vera bæði „orðlaus og rasandi“ eftir viðtalið og sagðist telja að Einar hefði sett „nýtt met.“
„Helga Vala Helgadóttir, alþingismaður Samfylkingar, er ein þeirra sem vegur að heiðri Einars Þorsteinssonar fréttamanns í Kastljósi og efnir til óvinafagnaðar gegn honum. Einar gerði aðeins það sem góðum fréttamanni ber. Hann endurtók spurningar þegar hann fékk ekki svör. Hann stóð sig með sóma í því að varpa ljósi á mál sem ber öll einkenni yfirklórs og þöggunar. Þingmaðurinn ætti að láta ógert að vega að fréttamanninum. Það ber vott um lítilmennsku þess sem ætlar að stökkva á vinsældavagn hræsninnar, vekja upp nettröll, og hengja boðbera hinna válegu tíðinda. Helga Vala hefði gert betur í því að taka málið upp í þingnefnd og rannsaka þaðan hvað það var sem kostaði þessar mannfórnir. Skömm hennar er mikil og henni augljóslega illa treystandi til að veita aðhald í samfélaginu.“
Hér má lesa pistil Reynis í heild sinni.