Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, getur verið býsna ákveðinn eins og þeir sem til hans þekkja vita. Reynir hefur að undanförnu stundað reglulegar föstur og stefnir hann á nýtt met í þessari viku: Fimm heila daga án matar.
Reynir hefur haldið vinum og vandamönnum upplýstum um gang mála á Facebook og í færslu sem birtist í hádeginu sagðist hann nú vera á fjórða degi í föstu. „Hef ekki bragðað matarbita síðan á sunnudagskvöld,“ segir hann.
Þeim sem stunda föstur þykir yfirleitt nóg að fasta í sautján tíma á sólarhring og eiga svo sjö tíma glugga þar sem má borða. En nálgun Reynis er önnur og hún virðist virka vel fyrir hann.
Hann segist hafa glímt við hungur í fyrradag en gærdagurinn hafi verið ljúfur. Hann hjólaði fimmtán kílómetra í góðum félagsskap og fór í heita og kalda pottinn á eftir.
„Í fyrramálið lýkur núverandi föstu með nýju meti. Þegar hungrið sverfur er óbrigðult ráð að fara í sund í Sandgerði. Hungur er víðs fjarri í dag og líðan eins og hún gerist best,“ segir Reynir og bætir við að bestu fréttirnar séu þær að fimm kíló eru nú fokin á þeim 11 dögum sem liðnir eru af mánuðinum.
„Og ég léttari á fæti sem því nemur,“ segir hann.