Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, segir að það ríki furðulegt og sumpart óhugnanlegt ástand á Hlíf á Ísafirði. Eins og greint var frá á dögunum kom upp COVID-19 smit á Hlíf þar sem eldri borgarar dvelja, þar á meðal móðir Reynis.
Fréttablaðið ræðir við Reyni um málið eftir að hann tjáði sig um það í færslu á Facebook í morgun.
„Einn heimilismanna greindist með Covid. Í framhaldinu var öllu skellt í lás. Móðir mín var sett í stranga einangrun sem hún ræður engan veginn við. Bræðrum mínum og mágkonum er harðbannað að hafa við hana samskipti, hvorki í tveggja metra fjarlægð eða meira,“ sagði Reynir í færslunni.
Þá bætti hann við að tengdadóttir hennar, sem er ónæm fyrir veirunni, megi ekki fara til hennar í sóttvarnarbúningi. Þá þurfi aðföng til hennar að berast í anddyrið.
„Hún fær sem sagt engan að hitta nema hugsanlega einhvern starfsmann. Þetta er að mínu mati mannréttindabrot og óboðleg meðferð á manneskju sem glímir við það að geta ekki séð um sjálfa sig óstudd,“ sagði Reynir en tók skýrt fram að þetta sé ekki á ábyrgð þeirra sem stjórna á Hlíf.
„Það fólk deilir áhyggjum með okkur sem erum nánust móður minni. Heilbrigðisyfirvöld bera alla ábyrgð á frelsissviptingu og einangrun hennar.“
Í samtali við Fréttablaðið segir hann að móðir hans sé hrædd og skilji ekki hvers vegna hún þarf að vera í einangrun.
„Þetta er svakalegt. Af því að hún er hrædd, smeyk og hún veit ekkert raunverulega hvað er að gerast og þetta er svo óþarft. Það er að segja, hún á að vera í einhverskonar sóttkví en hún er í rauninni bara í strangri einangrun, á þessum veika grunni,“ segir Reynir við Fréttablaðið.
Viðtalið við Reyni má lesa í heild sinni hér.