„Það er eitt að vera með fitufordóma, en annað að vera á móti því að fólk sé að drepa sig úr heilsuleysi,“ segir Reynir Traustason, einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar.
Í viðtalinu fara þeir Reynir og Sölvi um víðan völl, en eins og kunnugt er var Reynir ritstjóri DV um langa hríð og einn af eigendum miðilsins. Þá talar hann um heilsuna en Reynir gerði róttækar breytingar á lífsstíl sínum fyrir rúmum áratug og hefur ekki litið um öxl síðan. Hann var farinn að óttast um líf sitt vegna offitu og heilsuleysis.
„Ég er reyndar líklega búinn að létta mig um 500 kíló samanlagt í gegnum tíðina. En þegar ég ákvað að taka mig í gegn fyrir alvöru, þá gerðist það eftir ein áramótin þegar var orðinn 140 kíló. Ég hafði hætt að reykja og bætti í kjölfarið á mig 30 kílóum. Ég átti flottustu pípurnar í bænum og hafði reykt mikið, en ég fór með dóttur minni út í garð og við grófum holu og ég jarðaði pípurnar og við fórum saman með hugvekju um að ég væri hættur að reykja. En í kjölfarið þyngdist ég hratt,“ segir Reynir.
Þegar hann var búinn að þyngjast um 30 kíló ákvað hann að eina leiðin til að ná árangri væri að gefa út yfirlýsingu opinberlega til að halda sér ábyrgum.
„Ég stofnaði blogg sem hét „Baráttan við holdið“ og sagðist ætla á Hvannadalshnjúk eftir eitt ár og svo Mont Blanc í framhaldinu. Að vísu liðu 3 ár þar til ég komst upp á Mont Blanc, en þetta var gæfa mín að gera þetta svona. Síðan 2010 er ég búinn að fara á yfir 2.100 tinda. Að vísu er hægt að fara 4 ferðir á toppinn á Úlfarsfellið sama daginn og það telur sem 4 tindar, en ég fór mest 350 fjallgöngur á einu ári. En ég held að þetta sé það sem hafi bjargað mér, af því að ég verð svo manískur þegar ég set mér markmið og geri allt til að standa við það. Mataræðið og lífsstílinn byrjaði að batna samhliða fjallgöngunum.“
Reynir segist ekki vita hvar hann væri í dag ef hann hefði ekki tekið sig í gegn fyrir tíu árum.
„Ég var reykingamaður, ég var offitusjúklingur og svo var ég í versta djobbi á Íslandi sem ritstjóri DV með alla streituna sem því fylgdi. Nú hef ég tekið reykingarnar út, létt mig og lét svo reka mig af DV.”
Reynir, sem hefur nú gífurlega ástríðu fyrir útivist, segist telja að stóra málið í samfélaginu sé að reyna að stoppa faraldur heilsuleysis og lífsstílssjúkdóma:
„Þú getur bjargað lífi manns með því að fá hann til að taka þátt í útivist. Hvort sem það er þunglyndi, athyglisbrestur eða aðrir lífsstílskvillar, það byrjar allt að lagast þegar þú ferð út í náttúruna og labbar á fjöll. Mér finnst þetta vera stóra málið á næstu árum að við hjálpum fólki að bjarga sér frá sjálfu sér. Þegar lífsstílssjúkdómar eru farnir að drepa flesta er þetta stóra málið. Þeir stjórnmálamenn sem átta sig á þessu og setja lýðheilsu í forgang, þeir munu gera mikið gagn. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig á að útfæra það, en við verðum að gera eitthvað í þessum málum. Það er eitt að vera með fitufordóma, en annað að vera á móti því að fólk sé að drepa sig úr heilsuleysi. ”