Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, lýsir því hvernig hann fékk símtal frá samfélagsmiðlastjörnunni Eddu Falak í ritstjórnarpistli sínum. Hann segist hafa borið virðingu fyrir henni áður en nokkuð ljóst á skrifunum að svo er ekki lengur.
„Á dögunum fékk sá sem þetta ritar símtal frá baráttukonunni Eddu Falak, sem ég bar virðingu fyrir á þeim tíma og taldi að hún hefði kjark, þor og heiðarleika að leiðarljósi. Hún var kurteis í einkasamtalinu. Erindið að óska þess að fréttir á Mannlífi yrðu fjarlægðar. Önnur fréttin var um ásakanir um nauðgun sem hún bar á ónefndan aðila á samfélagsmiðlum. Því var kurteislega hafnað,“ skrifar Reynir.
„Þá byrjaði rottugangurinn. Edda birti frásögn sína af samtalinu á Twitter og fullyrðir að hún hafi fengið þau viðbrögð að þetta væri allt henni að kenna. „...Eftir að ég hringi í Reyni Trausta og grátbyð hann um að taka það út og hann segir þetta vera mér að kenna?“
Reynir heldur áfram og segir:
„Þessi áburður lýsir einstaklingi sem einskis svífst. Við skulum halda því til haga og hafa það alveg skýrt að ég hef aldrei sýnt fórnarlambi nauðgunar miskunnarleysi eða skilningsleysi. Þvert á móti á fólk í þeirri stöðu alla mína samúð. Falskar ásakanir um annað eru rógur. Edda átti þess kost á að koma í viðtal við mig um þessi mál og önnur sem hún hefur haldið á lofti en hún afþakkaði.“
Reynir segir að síðustu að villta vestrið megi ekki ráða för í því hvar mörkin liggi í samskiptum við fólk.
„Við hengjum ekki fólk í næsta tré. Við verðum að virða réttarkerfið og finna leiðina til þess að vernda fólk fyrir hvert öðru svo sleggjudómar ráði för. Fórnarlömb nauðgara verða að fá allan mögulegan skilning og lagaramma sem tryggir þeim sem best réttlæti. En það er ekki ásættanlegt að menn séu sakaðir að ósekju um nauðgun og látnir bera þann kross, saklausir til æviloka, að þeir séu slík ómenni. Það má aldrei gerast.“