Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, vandar stjórn Krabbameinsfélags Íslands ekki kveðjurnar í ritstjórnargrein sem birtist á vef Mannlífs í morgun.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í morgun hefur Krabbameinsfélagið farið fram á að fréttir, meðal annars þar sem starfsmaður félagsins sem gerði mistök við greiningu á leghálssýnis ræðir málið, verði fjarlægðar. Umræddur starfsmaður var í viðtali við Mannlíf í gær þar sem hann sagði sárt að félagið skyldi benda á hann í tengslum við málið.
Reynir segir að Mannlíf muni ekki fjarlægja neinar fréttir og raunar segir hann að fjarlægja þyrfti fólkið sem vinnur að því að rústa ímynd Krabbameinsfélagsins. Þeir hafi orðið uppvísir að því að bregðast bæði skjólstæðingum sínum og starfsfólki.
„Stjórnendur Krabbameinsfélagsins brugðust við tíðindum um dauðveikan skjólstæðing með þeim lítilmannlega hætti að benda á starfsmann sinn sem hefði gert mistökin. Félagið upplýsti að viðkomandi hefði glímt við andleg veikindi og gaf til kynna að það væri ástæða mistakanna. Þessu til viðbótar upplýsti einn af lykilstarfsmönnum félagsins í Kastljósi að um væri að ræða konu,“ segir Reynir í grein sinni.
Reynir segir að Krabbameinsfélagið hafi gert tvennskonar afglöp: Annars vegnar að skimun hafi reynst röng með þeim afleiðingum að ekki var hægt að bregðast við sjúkdómi sem varð ólæknandi. Ábyrgðin sé ekki á gólfinu heldur hjá æðstu stjórnendum. Önnur afglöp voru þau að lýsa sök á hendur starfsmanni sínum þar sem auk þess var fjallað um andleg veikindi.
„Athugið að einungis örfáir mánuðir eru síðan félagið þakkaði starfsmanni sínum góð störf og tíundaði að hann hefði tekið tugþúsundir sýna. Nú kveður við nýjan tón og starfsmaðurinn er úthrópaður. Þótt félagið hefði ekki nafngreint starfsmanninn þá var hringurinn þrengdur með því að upplýsa að um væri að ræða konu og grun þannig varpað á örfáa starfsmenn Krabbameinsfélags Íslands.“
Reynir segir að öllum megi vera ljóst að öll yfirstjórn Krabbameinsfélagsins hafi brugðist. Félagið hafi búið að þeirri ímynd að vera lífsgjafi og bjargvættur en stjórnin dregið nafn þess niður í svaðið.
„Til að kóróna allt annað krefst félagið þess að fréttir um starfsmanninn sem það úthrópaði verði fjarlægðar. Gefið er til kynna að Mannlíf og aðrir fjölmiðlar hafi skaðað starfsmanninn sem varð fyrir barðinu á stjórnendum félagsins. Félagið vill að farið verði með strokleður á málið og það afmáð.“
Reynir endar grein sína á þeim orðum öll stjórn Krabbameinsfélagsins og lykilstarfsmenn þess eigi að segja af sér.
„Félagið verður að blása til aðalfundar í því skyni að bjarga félaginu frá þeirri glötun sem blasir við undir núverandi stjórn. Fréttirnar um félagið á mannlif.is verða ekki fjarlægðar. En það þarf að fjarlægja fólkið sem er að rústa ímynd þess.“