„Það hefur færst í aukana síðustu vikur að fólk er að koma með bílinn til úrvinnslu því það vantar bara peninginn,“ segir Reynir Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vöku, í samtali við Fréttablaðiðí dag.
Vaka var áður til húsa í Skútuvogi en missti lóðina með skömmum fyrirvara. Nokkur styr hefur staðið um starfsemi Vöku við Héðinsgötu en Reynir, sem hefur verið í starfinu í fimm mánuði, viðurkennir að ástandið hafi ekki verið gott en nú sé unnið hörðum höndum að því að koma því í lag.
„Ég hef engan áhuga á að hafa þetta allt í rusli, þú rekur ekki fyrirtæki á slíku og ég er ekki þekktur fyrir að hafa skítugt í kringum mig,“ segir hann meðal annars.
Í skemmu á lóð Vöku og á afgirtu útisvæði eru um 150 bílar sem eru tilbúnir að fara á uppboð, en vegna COVID-19-faraldursins hafa engin uppboð farið fram síðan í júní. Reynir segir að það hafi færst í aukana að fólk komi með ökutæki sín til úrvinnslu því það vantar einfaldlega peninginn.
Eigandi fær 20 þúsund króna skilagjald á bíl. „Ég hef tekið á móti grátandi fólki,“ segir hann í viðtalinu.
Þá kemur fram að sex til átta þúsund bílar fari í gegnum Vöku í ár. Hluti fer til úrvinnslu, aðrir eru leystir út eða fara á uppboð.
„Það eru mörg dæmi um að fólk eða fyrirtæki skilji bílana sína eftir hér fyrir utan án þess að láta okkur vita. Það eru líka dæmi um að verktakar hafi fyllt sendiferðabíla af rusli, taki verksmiðjunúmerið af og skilji þá eftir fyrir sveitarfélögin til að hreinsa á sinn kostnað.“