Reynir Bergmann, eigandi skyndibitastaðarins Vefjunnar, varpaði í gærkvöldi ljósi á óhugnanlega tilraun til að sverta mannorð hans. Reynir skrifaði pistil á Faceook í gærkvöldi sem vakið hefur talsverða athygli.
„Reglulega fæ ég skilaboð í þessum dúr frá gömlum vinkonum sem ég hef sofið hjá eitthvertíman á lífsleiðinni… Þar sem þær eru spurðar um kynlífið með mér eða hvort við höfum sofið saman,“ segir Reynir sem birtir skjáskot af samskiptum hans við gömlu vinkonuna. Þá birtir hann skjáskot af samskiptum hennar við ótilgreindan aðila sem vildi athuga hvort hún hefði eitthvað misjafnt að segja um Reyni.
„Eitt málið gekk svo rosalega langt að það var verið að reyna að fá konu sem ég svaf hjá nokkrum sinnum til að koma fram í podcast-þætti sem var klárlega settur upp til að taka mig af lífi,“ segir Reynir og bætir við að það hafi verið vegna orða sem hann sagði óhugsað fyrir einhverjum mánuðum og baðst strax afsökunar á.
Reynir segir að tilgangurinn hafi verið sá að konan átti að lýsa nauðgun af hans hendi.
„Það var þjarmað svo að henni að hún hringdi í mig hágrátandi og sagðist næstum hafa trúað þessu upp á mig því mind fokkið og sannfæringarkrafturinn var svo rosalegur. Èg á öll þessi skjáskot frá henni,“ segir Reynir og bætir við að í þeim hafi eftirfarandi komið fram:
Ekki vera gerandameðvirk.
Þú varst á slæmum stað í lifinu.
Þú varst ekki þú sjálf.
Þú varst fórnalamb.
Sérðu eftir þessu í dag?
Hann hatar konur og fannst þú pottþétt bara drusla.
Gaf hann þér dóp.
Við bökkum þig upp.
Það þarf að finna eitthvað á hann.
Verðum að takan niður hann er með svo stórt platform og miklar skoðanir.
Við þurfum þína hjálp.
Vefjan verður að fara á hausinn.
Hann vill þér pottþétt ekkert gott.
Við munum styðja þig alla leið.
Þú hefur okkur að.
Í pistli sínum segir Reynir að stúlkan sem um ræðir sé góð vinkona hans og segist hann hafa staðið þétt við bakið á henni þegar henni var nauðgað árið 2004. Þessi sama stúlka hafi svo verið nálægt því að koma fram í hlaðvarpsþætti með ásakanir vegna þrýstings og heilaþvottar. Reynir segir í lok pistilsins:
„Þetta verður að fara að stoppa og við þurfum öll að fara að vinna saman að betra Íslandi áður en einhver lætur lífið.“