Reynir Bergmann fær á lúðurinn: „Hvernig getur fólk tekið manninn alvarlega?“

Áhrifavaldurinn og skyndibitastaðaeigandinn Reynir Bergmann hefur skapað mikinn usla á samfélagsmiðlum vegna ummæla sem hann lét falla á Instagram-síðu sinni í gær.

„RB er Team fokking Sölvi Tryggva. Mellur og vændiskonur, fokkið ykkur,“ sagði Reynir í myndbandi sem hann birti á síðu sinni.

Um fátt hefur verið meira rætt hér á landi undanfarna daga en umrætt mál, en tvær konur hafa kært fjölmiðlamanninn Sölva Tryggvason til lögreglunnar fyrir ofbeldi. Fjölmargir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum síðan málið kom upp og sagt sögu sína af ofbeldi af hálfu karlmanna. Voru ummæli Reynis sem olía á eldinn í þeirri umræðu sem nú fer fram.

Myndbandið af Reyni hefur vakið hörð viðbrögð á Twitter þar sem margir hafa fordæmt það eins og meðfylgjandi tíst bera merki um.

Reynir dró í land í kjölfar myndbandsins og sagði í öðru myndbandi í gærkvöldi að hann væri að henda í afsökunarbeiðni og tæki ummælin til baka. Hann sagði þó að einstaklingar eigi að teljast saklausir uns sekt hefur verið sönnuð. Ljótt væri að taka fólk af lífi án þess að búið sé að dæma.

„Mér finnst það gróft, mér finnst það mjög ljótt,“ sagði hann meðal annars.