Það datt áhugaverð auglýsing inn á sölusíðuna Brask og brall, en Hugi Hreiðarsson setti meðal annars Idol áhorfendastúku á á sölu.
Eins og flestir vita var Idol stjörnuleit geysivinsælt hér á landi á árunum 2003-2009. Margir muna eftir keppendum eins og Kalla Bjarna sem vann fyrstu keppnina eftir spennandi úrslit við fimmhundruðkallinn Jón Sigurðsson.
Stúkan var að öllum líkindum í Vetragarðinum í Smáralind þar sem úrslitin í Idol stjörnuleit fóru fram. Um 640 manns geta setið í henni, en áhugavert verður hvort einhver festi kaup á henni og komi henni upp í garðinum hjá sér.