Egilsstöðum er líkt við þriðja heims ríki í grein á vef Eiríks Jónssonar í dag. Sá sem á þessa líkingu er íbúi Reykjavíkur sem er á ferð um landið.
„Eitt einkenni vel þróaðra ríkja eru góðir innviðir og stöðugt rafmagn.“ skrifar umræddur höfuðborgarbúi sem segir að í dag hafi rafmagnið í sífellu dottið út og þar með hafi öll verslun í bænum lamast.
„Á Egilsstöðum hefur rafmagnið ítrekað dottið út í dag. Öll verslun í bænum lamaðist, þegar samband posa við netið datt út.“
Sá hinn sami birtir einnig mynd úr verslun Nettó, en hún sýnir þvögu óþreyjufullra viðskiptavina.