Íbúar í miðborg Reykjavíkur virðast vera búnir að fá sig fullsadda af lélegri snjómokstursþjónustu í hverfinu.
Leikkonan Telma Huld Jóhannesdóttir birti færslu í íbúahópi miðborgarinnar á Facebook þar sem hún kvaðst hafa hringt í borgina í morgun til að kvarta undan lélegri þjónustu, til dæmis á gangstéttum í Þingholtunum og víðar í miðborginni.
„Þau gátu engin svör veitt um hvort væri búið að gera nokkuð (salta, sanda eða ryðja) eða hver dagskráin væri varðandi aðgerðir. Bentu mér á að senda email og mig langar að hvetja öll sem finnst ástandið ekki boðlegt að senda líka og láta í sér heyra,“ segir Telma sem fékk þau skilaboð að senda tölvupóst á Eið Fannar Erlendsson sem stýrir vetrarþjónustu borgarinnar.
Telma segist vera orðin langþreytt á að þurfa að ganga á götunni á veturna til að detta ekki. Þetta sé óskiljanlegt miðað við fjölda fólks í hverfinu og fjölda þeirra sem lifir bíllausum lífsstíl.
Það eru fleiri en Telma sem hafa fengið nóg því aðrir íbúar leggja einnig orð í belg og lýsa yfir óánægju sinni.
„Sem einstaklingur sem rifbeinsbrotnaði í hálkunni um daginn er ég fullkomlega sammála því að það þarf alvarlega að gera eitthvað í þessum málum,“ segir einn íbúi til dæmis.
Annar íbúi segir að svo virðist sem metnaðarleysi sé ríkjandi á mörgum sviðum hjá borginni.
„Snjómokstur í rugli, leikskólamál í rugli, málefni heimilislausra í rugli o.s.frv. Ég er ekki að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé neitt betri. Sá flokkur vill selja allt, einkavinavæða allt og ömmu sína líka. Við þurfum að fá betra fólk til að stjórna borginni okkar, fólk sem er drífandi, hefur metnað og vilja. Það gengur ekki að hafa fólkið sem er við stjórn þessa stundina.“